top of page

1. Almennir viðskiptaskilmálar

1.1. Almennt

Be Fit Pilates er rekið af Athlétique ehf. (kt. 700123-0140) í eigu Guðlaugar Ýrar þjálfara.

ā€‹

Við skráningu í áskrift og á námskeið á vegum Athlétique ehf er gerð krafa um að viðskiptamaður (iðkandi) samþykki skilmála sem koma hér fram. Það er á ábyrgð viðskiptamanns (iðkanda) að kynna sér vel skilmálana.  

ā€‹

1.1.1 Ábyrgð viðskiptamanns (iðkanda)

Með því að eiga viðskipti við Be Fit Pilates | Athlétique ehf. lýsi ég því yfir að mér er óhætt að stunda hefðbundna líkamsrækt og ég veit ekki af neinum heilsufarskvillum sem gera það hættulegt fyrir mig að stunda líkamsrækt. Ég veit og skil að það að stunda hverskonar líkamsrækt getur falið í sér hættu á meiðslum og slysum og það á einnig við um þjónustu Be Fit Pilates.

 

Ég iðka líkamsrækt á eigin ábyrgð og mun ekki halda því fram að Athlétique ehf.  eða þjálfarar beri ábyrgð á hugsanlegum meiðslum eða slysum sem kunna að leiða af líkamsrækt minni.

ā€‹

1.2 Efni á heimasíðu og önnur þjálfun á vegum Athlétique ehf. 

Æfingar skulu ekki sýndar á opinberum stöðum og ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

ā€‹

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.

ā€‹

Kaupandi gerir sér grein fyrir að hann eignast ekki æfingarnar heldur hefur aðeins aðgang að þeim á meðan hann er skráður og hefur greitt fyrir aðgang. 

ā€‹

1.3 Viðkvæmir, ungir og aldnir

18 ára aldurstakmark er fyrir skráningu á námskeið. 

ā€‹

Æfingarnar eru ekki aðsniðnar fyrir fólk sem þjáist af ákveðnum meiðslum, sjúkdómum eða öðrum verkjum.

 

Æfingarnar eru ekki hugsaðar fyrir eldra fólk. 

ā€‹

1.4 Trúnaður

Ítrasta öryggis og fyllsta trúnaði er heitið við meðferð persónuupplýsinga kúnna. 

ā€‹

1.5 Binditími

Fyrsta skráning í áskrift er ávalt bindandi. Reikningur er sendur í heimabanka viðskiptamanns(iðkenda) sem skal greiddur. Eftir það er hægt að segja upp áskrift hvenær sem er. Vinsamlegast athugið að skráning á námskeið í sal er bindandi. 

ā€‹

1.6 Endurgreiðlsuréttur

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.

ā€‹

1.7 Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Athlétique ehf. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

ā€‹

1.8 Breytingar 

Athlétique ehf /Be Fit Pilates áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.

ā€‹

ā€‹

2. Ítarlegir skilmálar vegna áskriftarþjónustu

 

2.1 Verð og tímabil 

Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara. Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) hækkar mun Athlétique ehf. senda tilkynningu þar um og taka verðbreytingar þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum.  

 

Krafa er send í heimabanka þar til áskrift er sagt upp.  

ā€‹

2.2 Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) í áskrift

Kröfur eru sendar í heimabanka viðskiptamanna sem skrá sig í mánðarlega eða árlega áskrift. Kaupandi þarf að segja sjálfur upp áskrift ef hann vill ekki lengur ahafa aðgang að þjónustunni.

 

Rukkun fyrir áskrift verður send þar til kaupandi segir henni upp.

 

Ógreiddar kröfur sem falla á eindaga fara í innheimtuferli Inkasso.

ā€‹

2.3 Binditími áskriftar 

Það er ábyrgð viðskiptamanns að segja upp áskrift. 

ā€‹

Segja þarf upp áskrift áður en krafa er fallin á eindaga.

 

Ef krafa hefur fallið á eindaga er of seint að segja upp fyrir þann mánuð og tekur uppsögn þá gildi að mánuði liðnum. 

ā€‹

Ógreiddir reikningar sem eru fallnir á eindaga fara í innheimtu hjá Inkasso. 

ā€‹

2.4 Árskort 

ā€‹Árskort er staðgreitt í einni greiðslu. Árskort eru óendurgreiðanleg. Ef þarf að gera hlé á æfingum vegna tilfallandi aðstæðna má hafa samband við gully@befitpilates.co.uk 

ā€‹

Að ári lliðnu fær viðskiptavinur aftur sendan reikning fyrir árskorti hafi áskrift ekki verið sagt upp.

ā€‹

Það er ábyrgð viðskiptamanns að segja upp áskrift. 

ā€‹

2.5 Ljúka áskrift 

Til að ljúka áskrift getur þú fyllt út formið hér (verður að vera innskráð á heimasvæði iðkanda). Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfang askrift@befitpilates.co.uk og biðja um stöðvun á áskrift. Áskrift er þá stöðvuð um hæl. Ath! Í póstinum þarf að koma fram nafn og kennitala. Ef þú kýst að ljúka áskrift en búið er að senda kröfu í heimabanka er hægt að biðja um að láta eyða færslunni og segja upp áskrift um leið. Ath! Ef krafa er fallin á eindaga er of seint að segja upp fyrir þann mánuð og tekur uppsögn þá gildi að mánuði liðnum. 

ā€‹

2.6 Endurgreiðsla 

Ekki er hægt að fá endurgreitt vegna þjálfunar sem búið að greiða fyrir.

ā€‹

 

3. Ítarlegir skilmálar námskeiða

ā€‹

Skráning er bindandi og er viðkomandi gert að greiða kröfu í heimabanka. 

ā€‹

Viðskiptamaður gerir sér grein fyrir því að með því að fylla út skráningarform á námskeið og samþykkir skilmála Athlétique að hann sé þá skuldbundinn til að greiða fyrir námskeið. Krafa er send í heimabanka viðkomandi. 


Þegar þú skráir þig á námskeið ert þú að kaupa pláss á námskeið en ekki ákveðinn tímafjölda.

Komi til þess að þú nýtir ekki hluta af námskeiði bendum við þér á heimaæfingarnar sem þú fékkst sendar í fyrstu námskeiðsvikunni, aðgengi að facebook hóp og heimasíðu Be Fit Pilates.

Ekki er unnt að bæta upp námskeið með öðrum hætti.

 

Ógreiddar kröfur fara í innheimtuferli hjá Inkasso með tilheyrandi kostnaði. 

ā€‹

Ath! Ef til lokana kemur vegna sóttvarnaraðgerða verður námskeið sem hafið er klárað við fyrsta tækifæri eða í fjarkennslu (online). Athugið að ekki verður hægt að bæta upp námskeiðstíma með öðrum hætti. 

ā€‹

Skráning á námskeið er bindandi. Ef viðkomandi þarf kemst ekki á námskeið verður í boði að koma á næsta lausa námskeið í staðinn.

ā€‹

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.

ā€‹

Ef tími er felldur niður vegna veðurs, veikinda eða annarra tilfallandi atvika verður boðið upp á auka tíma í staðinn. Ekki er hægt að eiga tíma inni seinna á öðru námskeiði. 



Námskeið eru ekki endurgreidd.ā€‹

  • Athugið : Námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja sem endurgreiða námskeiðskostnað.

ā€‹

4. Ítarlegir skilmálar sérstakra tíma eða POP-UP tíma

ā€‹

Skráning er bindandi og fæst tíminn ekki endurgreiddur.

Komi til þess að þú missir af tímanum getum við boðið þér tvo fría daga í heimaþjálfun. 



.

ā€‹

ā€‹

ā€‹

ā€‹

ƁSKRIFTSKILMƁLAR
bottom of page