top of page
IMG_9935.jpeg

GPB Method

Pilates · Barre · Styrkur

GPB Method er æfingakerfi þróað af Gullý þar sem Pilates, Barre og styrktarþjálfun mætast. Markvissar, flæðandi æfingar byggja upp styrk, bæta líkamsbeitingu og móta allan líkamann - með áherslu á stjórn, gæði hreyfinga og sterkan kjarna.

Í haust eru tvö námskeið, fyrra 14. sept - 28. okt (7 vikur) og seinna hefst 2. nóv - 16. des (7 vikur)

Kennt mán & mið 17:30 í UMI Wellness Studio

GPB Method
haustonn

Öll önnin 14.09-16.12

28.000 kr

á mánuði í 3 mánuði

3000 kr/tíminn

GPB Method
​stakt namskeid

7 vikna námskeið 14.09-28.10

44.100 kr

greitt í stakri greiðslu

3150 kr/tíminn

Öll önnin

GPB Method 

Fjölbreyttir og markvissir tímar þar sem Pilates, Barre og styrktarþjálfun mætast. Þjálfum allan líkamann á mjúkan en öflugan máta. 

Áhersla er lögð á styrk, stjórn og góða líkamsbeitingu með æfingum sem byggja upp sterkan kjarna, bæta liðleika og auka líkamsvitund.

Engir tveir tímar eru eins. Við vinnum með eigin líkamsþyngd og fjölbreytt áhöld til að skapa krefjandi og skemmtilega æfingu.

​​

UMI Wellness Studio

Tímarnir fara fram í UMI Wellness Studio við Austurströnd 1 – fallegu æfingarými þar sem lögð er áhersla á persónulega upplifun.

Öll áhöld á staðnum svo ekki þarf að hafa neitt meðferðis nema vatnsbrúsa og jógahandklæði. Gott er að mæta um 5 mínútum áður en tíminn hefst til að koma sér fyrir.

"Gullý er klárlega besti kennari sem ég hef kynnst, svo hvetjandi og jákvæð. Hlakka alltaf til að mæta á æfingar hjá henni og geng út orkumeiri."

Fanndís Ingvars

bottom of page