FIT PILATES KVÖLDSTUND
þriðjudaginn 11 júní kl 18:30
Taktu frá kvöldið með vinkonu! Fyrir konur á öllum aldri.
Geðheilsan? Hvernig virkar hún best? Hvernig hlúum við að henni? Við vitum flest að líkamsrækt, útivera og samverustundir með nákomnum gerir gott en hvað annað?
Við byrjum kvöldið á léttu spjalli með Jóhönnu Dröfn, sérnámslækni í geðlækningum sem mun taka fyrir skemmtilega fræðslu um geðheilsu í daglegu lífi og veita góð ráð.
Þá tekur við kröftugur Fit Pilates & Barre Burn tími með Gullý.
60 mínútna tími byggður á hinu árangursríka æfingakerfi pilates og barre. Við munum liðka og opna líkamann með kröftugu styrktar- og hreyfiflæði. Tímarnir eru settir upp til að móta, liðka og styrkja allan líkamann.
Allar fara vel endurnærðar út, fullar af visku og innblæstri um geðheilsuna. Þá fylgir með vegulegur gjafapoki fyrir alla þátttakendur.
Skráning hefst þriðjudaginn 4 júní
Tíminn er opinn öllum. Verð 4.900 kr
Viðburðurinn er haldinn í fallegu stúdíói Nuna Co á grandanum. Fiskislóð 75, 101 Reykjavík.
Uppselt er á viðburð