top of page

Október

Leyfum rútínunni að njóta sín í október í takt við haustið. Fullkominn tími til þess að æfa inni, jafnvel stundum í kósý gallanum.

ā€‹

ā€‹Í október eru 4 vikur. Í hverri viku eru 3 hálftíma æfingar og 1 mini æfing sem er 10-20 mín.  

ā€‹

ā€‹

Tilbúin? Byrjum!

ā€‹

ā€‹

espressosett-10.jpg

Markmið 

ā€‹

S - Skýr

M - Mælanleg 

A - Aðlaðandi 

R - Raunhæf 

ā€‹T - Tími 

ā€‹

Settu þér skýr markmið sem auðveldlega er hægt að mæla. Markmiðin þín verða líka að vera aðlaðandi fyrir þig, eitthvað sem þig virkilega langar að eltast við því þetta á að vera skemmtilegt. Við ætlumst oft of mikils af okkur sjálfum og þá skiptir máli að vera raunhæf, hef ég í alvörunni tíma í að elda 4x í viku og taka 3x æfingar? Einnig er gott að ákveða tímalengd, sama hvort það er hvenær á markmiðinu að vera náð eða í hversu langan tíma þú ætlar sinna markmiðinu. 

 

Hugmyndir að markmiðum tengd hreyfingu fyrir allan mánuðinn. Athugaðu að sum markmið þarf að aðlaga að aðstæðum sem geta komið upp. Lífið er ekki bein braut og stundum þarf að taka óvæntar beygjur. Við refsum okkur ekki fyrir það heldur höldum ótrauð áfram. 

ā€‹

Setjum okkur SMART markmið fyrir þjálfun í október.  

ā€‹

Hversu oft ætlar þú að æfa í viku? Hvenær ætlar þú að æfa? Hvar ætlar þú að æfa? 

ā€‹

Hversu oft vilt þú æfa utandyra í viku? (göngutúr, hlaup, fjallganga, hjól) Hvaða daga og klukkan hvað? Kemur einhver með mér? 

ā€‹

Ég ætla að mæta á x margar æfingar á réttum tíma. 

ā€‹

ā€‹Markmiðið mega líka vera kósy eins og t.d. Ég ætla að hvíla alla sunnudaga.

ā€‹

ā€‹

ā€‹

bottom of page