top of page

Nóvember

Veturinn er í alvöru kominn, orðið kalt og dimmt. Æfum saman heima í hlýjunni, það má hafa kveikt á kertum eða jafnvel fyrstu jólaljósunum. Tími til að hlakka til og skipuleggja hátíðirnar en ekki gleyma að rækta líkama og sál. 

​Í nóvember eru 4 vikur. Í hverri viku eru 3 hálftíma æfingar og 1 mini æfing sem er 10-20 mín.  

Tilbúin? Byrjum!

espressosett-10.jpg

Markmið 

S - Skýr

M - Mælanleg 

A - Aðlaðandi 

R - Raunhæf 

​T - Tími 

Settu þér skýr markmið sem auðveldlega er hægt að mæla. Markmiðin þín verða líka að vera aðlaðandi fyrir þig, eitthvað sem þig virkilega langar að eltast við því þetta á að vera skemmtilegt. Við ætlumst oft of mikils af okkur sjálfum og þá skiptir máli að vera raunhæf, hef ég í alvörunni tíma í að elda 4x í viku og taka 3x æfingar? Einnig er gott að ákveða tímalengd, sama hvort það er hvenær á markmiðinu að vera náð eða í hversu langan tíma þú ætlar sinna markmiðinu. 

 

Hugmyndir að markmiðum tengd hreyfingu fyrir allan mánuðinn. Athugaðu að sum markmið þarf að aðlaga að aðstæðum sem geta komið upp. Lífið er ekki bein braut og stundum þarf að taka óvæntar beygjur. Við refsum okkur ekki fyrir það heldur höldum ótrauð áfram. 

Setjum okkur SMART markmið fyrir þjálfun í nóvember  

1. Hversu oft ætlar þú að æfa í viku?

2. Hvenær ætlar þú að æfa?

3. Hvar ætlar þú að æfa? 

​Markmiðið mega líka vera kósy eins og t.d. Ég ætla að gera eitthvað fyrir sjálfa mig öll sunnudagskvöld.

bottom of page